Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Ennþá í sandkassanum.

Alveg finnst mér Þórunn hefði mátt sleppa þessari yfirlýsingu sinni.

Steinunn Valdís er ekkert betri þó að aðrir séu verri, þau eru öll með ranga siðferðiskennd þau sem þáðu fúlgur fjár í styrki, til að koma sér á framfæri og auðvitað ættu þau öll að vera farin frá  störfum sínum og það strax.

Sjálfstæðismenn í Borgarstjórn eru þar engin undantekning þar þarf að hreinsa til og það út í öll horn.

Steinunn Valdís átti að vera farin fyrir löngu þá hefði verið hægt að skjalla hana pínu Þórunn, en núna, nei allt of seint í rassinn gripið hjá henni því miður.


mbl.is Setur þrýsting á aðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fékk bréf frá Hönnu Birnu.

Inn um póstlúguna mína í dag kom bréf frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Ég hef aldrei fengið bréf frá henni áður en ég hef sent henni bréf og hún virti mig ekki viðlits. Svaraði ekki.

Ég hef fengið bréf í hverri viku frá Hönnu Birnu, en það bréf hefur verið á tölvutæku formi, komið í veffangið mitt og trúlega ekki kostað mikið.

Ég las það tvisvar sinnum en síðan hef ég sett það í ruslatunnuna.

Hanna Birna er mjög ánægð með verk sín segir hún í bréfinu og vill halda áfram að vinna að sínum góðu verkum. Það er að sjálfsögðu mjög gott að hún er ánægð með sig og sína vinnu en ég er það alls ekki.

Það er margt sem ég hef reynt að að koma til yfirvalda  í Ráðhúsinu en það er engin nennt að hlusta.

Sem starfsmaður borgarinnar finnst mér mjög margt sem að mætti laga.

Finnst Borgarstjóra þjónusta hennar við eldri borgara framúrskarandi ?

og skólarnir eru þeir framúrskarandi ? 

Ef svo er finnst mér eins og Borgarstjóri viti alls ekki hvað er að gerast í þessari borg.

Það er langt frá því að ástandið sé framúrskarandi Hanna Birna, því miður.

Ég veit að það eru margar hliðar á öllum málum og þessu líka, en betra væri að spara stóryrðin og fylgjast með hvað er að gerast í Borginni.

Hver ætli greiði fyrir þessa póstsendingu Hönnu Birnu, ég vona að það hafi ekki verið við hér í Reykjavíkurborg.

 


Seinfærir ?

Það alveg ótrúlegt að þeir sem þáðu mikla styrki sjái ekki sóma sinn í að þakka fyrir sig og yfirgefa svæðið.

Flokkarnir ná ekki trausti fólks nema að hreinsað verði til.

Ég met það siðblindu að þeir sem þáðu styrki finnst það vera í lagi (það skiptir ekki máli á hvaða árum það var) . Stór hluti þjóðarinnar er ósáttur við þetta og það er þjóðin sem að þetta fólk er í umboði fyrir.

Skilja þeir það virkilega ekki, hvaða ráðgjafa hefur þetta fólk ? ég bara spyr ?

Velgengni Besta flokksins fær allt þetta fylgi vegna óánægju við þá flokka sem fyrir eru. Ef fer sem horfir og engin sér sóma sinn í að yfirgefa stjórnmálasvæðið af þessum umdeildu einstaklingum verður Spaugstofan trúlega í framboði fyrir næstu Alþingiskosningar eða einhverjir álíka fyndnir.


mbl.is Skoða ekki styrki Steinunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta segir allt sem segja þarf.

Borgarbúar eru orðnir langþreyttir á þeim sem að sitja í Borgarstjórn. Það sýna þeir með því að setja X við Besta flokkinn.

Ekki veit ég hvort þeir sem eru á lista Besta flokksins séu nokkuð verri né betri en þeir sem skipa aðra lista, það mun koma í ljós síðar.

Hvaða reynslu hafa menn í Borgarstjórn, margir hafa ekkert annað gert en að vera í stjórnmálum og það alla sína ævi.

Þeir sem ákveða að fara í stjórnmál á fermingardeginum sínum, ákveðin í að komast til valda sama hvað á dynur eru að mínu mati fólk án reynslu.

Það ætti að setja reglur um að fólk sem býður sig fram til stjórnmála hafi reynslu af atvinnulífinu, hafi reynslu að vinna úti á hinum almenna vinnumarkaði.

Framboð Besta Flokksins segir okkur að fólk vilji breytingar, vilji annað fólk til starfa en það sem setið hefur við völd undanfarin ár.

Við viljum heiðarlegt fólk sem vinnur fyrir fólkið en ekki eingöngu fyrir sig og sína "vini". 

 


mbl.is Mikið forskot Besta flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli þeir geti lokað á sjúkdóma.

Það er alltaf erfitt þegar það þarf að spara.  Þó er hægt að spara víða án þess að það skapi mikil óþægindi.

"Kreppan" hefur haft þær afleiðingar að fleiri hafa fundið fyrir geðsænum sjúkdómum.

Depurð eykst hjá fólki þegar það á ekki fyrir því nauðsynlegasta eins og  mat, svo ég tali nú ekki um fólkið sem ekki hefur þak yfir höfuðið.

Ætli þeim takist að spara sjúklinga, það væri það eina sem gæti leist lokun bráðadeildar geðsviðs. Landsspítalans.


mbl.is Geðdeild lokað í sparnaðarskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að vera einhver rík nauðsyn til þess,

Hvað er að gerast. Þegar háttvirtir lögmenn halda slíku fram verður hver maður kjaftstopp.

Ætlar þetta rugl aldrei að taka enda.

Hvar er heiðalega fólkið á þessu landi ????


Besti flokkurinn er bestur.

Besti flokkurinn fær okkur til að hlæja. Ekki veitir okkur af.

Hvort loforðin standi er aukaatriði. Það eru fá loforð sem hafa staðið hjá hinum flokkunum, hvort sem er.

 


Orkunotkun eykst við daglega hreyfingu.

  • Liggjandi í hvíl = 70 kcal
  • gangur innandyra= 140 kcal
  • Að keyra bíl= 90-140 kcal
  • Krefjandi vinna= 570 kcal
  • Ganga 4km/klst = 240 kcal
  • Ganga 8km/klst = 550 kcal
  • Ganga upp tröppur= 710 kcal
  • Hlaup10km/klst = 690 kcal
  • Að hjóla18km/klst = 600
  • Að skríða = 770
  • Bringusund = 640
  • Orkunotkun á 1 klukkustund.


Fréttastofan óháð eigendum ?

Það hefur verið reynt aftur og aftur að telja okkur trú um að Fréttastofunni sé ekki stjórnað af eigendum.

Vonandi hætta þeir því núna því það er deginum ljósara með afsögn Óskars Hrafns að það eru eigendurnir sem að stjórna Fréttastofunni.

Það eru fáir fjölmiðlar sem að hægt er að hafa trú á, það sannar sig aftur og aftur.

Ætli bloggið sé ekki sterkast því þar er grasrótin ennþá við völd þó svo að "sumir" reyna að koma sínu fram þar undir "keyptum" nöfnum.


mbl.is Fréttastjóri hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fitan er holl.

Það er alltaf verið að gera einhverjar rannsóknir sem að rugla fólk bara í ríminu.

Fita úr hnetum er holl og hefur lengi verið talin holl.

Fita er lífsnauðsynleg og við þurfum að fá hana alla daga í réttum hlutföllum.

Ég vona nú samt að fólk rjúki ekki til og fari að háma í sig hnetur eftir að hafa lesið þessa frétt. Því hnetur er orkumiklar.

Fjölbreytt mataræði, borðað í hæfilegum skömmtum er það besta fyrir flest okkar.


mbl.is Hnetur allra meina bót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband