Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Loksins.

Það hefur tekið mörg ár fyrir þá sem sýna og framleiða föt að átta sig á því að það eru ekki margir fullþroska einstaklingar í stærð 10.

Þetta hefur verið mikil þráhyggja að halda áfram að hafa gínur í stærð tíu þegar meðal-Gunnan er í stærð 14-16. Þessi þráhyggja hefur grætt margan kúnnann sem gjarnan vill vera eins og gínan.

Þannig hefur það nú bara verið.midge-fran-barbie-dolls.jpg

Núna nálgumst við kannski raunveruleikann meira með stærð 16. Húrra fyrir því.

 


mbl.is Ríða á vaðið með gínur í stærð 16
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangarnir á Litla Hrauni

Það hlýtur að vera slæmt að lenda í fangelsi og enn verra að lenda þar aftur og aftur.

Lögreglan á marga "góðvini" og flestir ef  ekki allir  lenda á Litla Hrauni. Þannig er það nú.

Í lýðræðisríki er það nú þannig að við blæðum mörg fyrir það sem fáir gerðu og við höfum ekkert getað gert við því. Stór hluti þjóðarinnar situr í súpunni.

Launahækkun hefur engin orðið hjá "almúganum" af hverju á hún að vera hjá föngum "frekar "?

Það er ekki langt síðan að frétt var um að í fangelsinu væri fullt af "fíkniefnum", þau hljóta að koma inn með "heimsóknargestum".

Fangelsisyfirvöld eiga alla mína samúð og þá sérstaklega hún Margrét.

 


mbl.is Mikil reiði ríkir meðal fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband