Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Eru endurskinsmerkin eitruð ?

images-3_934583.jpgÞað mætti halda að endurskinsmerki væru eitruð, því það er varla að þú sjáir nokkra manneskju nota endurskinsmerki.

Í morgun þurfti ég að fara úr Vesturbænum alla leið inni í Skeifu(mér finnst það langt). Það var dimmt í morgun eins og undanfarna morgna. Fólk veður yfir götuna hvar sem það kemst í kolsvörtum fötum og engin með endurskinsmerki.

Hvað er að fólki hvernig dettur því í hug að fara út án endurskinsmerkis í þessu myrkri ?


Hverjum dettur í hug önnur eins vitleysa ?

images-3_934250.jpgÞað að leyfa sér að hugsa slíka hugsun að hvetja aðra til að sparka í fólk með ákveðin háralit er alveg ótrúleg.  Þvílík siðblinda.   Ég legg til að fólk hvetji aðra til að faðma mann og annan á morgun, það getur glatt.
mbl.is Ekki gott að sparka í annað fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur bjór.

dscn3706.jpgGott hjá íslendingum að búa til sinn eigin jólabjór. Við þurfum þá ekki að vera eltast við þann danska, sem alltaf stendur fyrir sínu.Ég skellti mér í sumarbústað á Suðurlandi um daginn og bragðaði þá að sjálfsögðu bjór heimamanna eins og manni ber að gera.

Ég keypti fjórar tegundir í Ríkinu á Selfossi, þrír voru góðir og þá sérlega Freyjan en sá fjórði var hreint út sagt úff, afar sérstakt bragð.  Ég mun ekki bragða hann aftur.


mbl.is Ekki nóg að hafa jólasvein á miðanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki ráðlegg að fjölga hundum ?

images-3_934051.jpgLeitarhundar virðast vera þeir einu sem að finna fíkniefni.  Væri ekki ráðlegg að hafa hunda víðar, eins og til dæmis í Héraðsdómum víðs vegar um landið, á flugvöllum og lögreglustöðvum. Já bara hér og þar um landið.  Hundar myndu auka öryggi.
mbl.is Fíkniefnasmygl í héraðsdómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það má nú alltaf segja...

Björgvin sér eftir að hafa ekki sagt af sér daginn eftir bankahrun.Það sýnir sig nú í þessum pistli að að einhverjir ráðherrar voru og eru alls ekki starfi sínu vaxnir.

Af hverju ætli fólk hafi þörf fyrir að komast í æðstu embætti ?

Oft er eins og það sé mest athyglisýki, sjaldnast er það vegna þess að þetta fólk vill  gera þjóðinni vel. Þetta virðist allt vera meira og minna eiginhagsmunapot og valdafíkn.  Hlúa að vinum og flokksbræðrum og systrum og lifa góðu og notalegu lífi.


mbl.is Björgvin íhugaði tvisvar afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum að taka þennan leiða sið frá U.S.A.

íslendingar eru að taka þann leiða sið frá Bandaríkjamönnum að kæra allt og alla.

Ef að höfundi Ávaxtakörfunnar finnst þetta líkjast hennar handriti finnst mér að hún eigi að vera glöð með það að vera góð fyrirmynd.

Góðar fyrirmyndir eru gulls ígildi. 


mbl.is Ávaxtagolf sýnt áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu eiga ráðherrar að bera ábyrgð..

Auðvitað eiga ráðherra að axla sína ábyrgð.Ef þjóðin vill heiðarleika er ekki spurning að ráðherra bera mikla ábyrgð á því sem hefur gerst, ef ekki alla ábyrgð.

Hvað með alla alþingismennina sem að studdu þessar gjörðir ríkisstjórnarinnar, bera þeir ekki líka ábyrgð ?

Ég tel þá þingmenn sem að studdu þessar gjörðir eigi allir að víkja, fyrr fáum við ekki traust á þingmönnum. 


mbl.is Ráðherrar fyrir dóm?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilbrigðisvottorð á alla og siðferðisvottorð.

Það er trúlega þörf á að fá heilbrigðisvottorð frá þeim sem ráða ríkjum hér á landi. Það væri einnig skynsamlegt að gera á þeim siðferðilegt mat.Svo væri gott að fara yfir feril þeirra hverju þau hafa til dæmis komið í verk og hvað margar nefndir þeir sitja í og hvaða fríðindi þau hafa.  500 þúsund krónur strípuð laun er meira en nóg fyrir þessa stjórnendur ríkis og borgar.

Baldur er búin að segja að hann hafi ekki gert neitt rangt.

Það er engum að treysta. Baldur var búin að segja að hann hefði ekkert gert sem væri saknæmt.Sjálfstæðismenn hafa jú komist langt án þess að vera sekir.Þetta er alvarlegt sérstaklega þar sem maðurinn var í áhrifastöðu þegar hann lét af störfum til að skapa frið. Já hann gerði það til að skapa frið.

Það má alveg búast að þetta sé fyrsta málið af mörgum.

Verðum samt að bíða þar til sekt er sönnuð  ? 


mbl.is Staðfestir kyrrsetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgi eða forvitni ?

Það er oft eins og íslendingar eigi ekki neitt þegar nýjar verslanir opna. Fólk fer að bíða fyrir utan löngu fyrir auglýstan opnunartíma.

Það virðist vera alveg sama hvað er að gerast alltaf myndast troðningur.

Basarinn hjá Hringnum var þannig um daginn að 20 mínútur fyrir opnun var komin örtröð fyrir utan. 

Flestir hljómleikar sem haldnir verða fyrir jólin eru  alla veganna með eina aukasýningu.

Er svona lítið að gerast hjá okkur eða hvað ætli valdi þessari "græðgi" ? 


mbl.is Tekið á móti viðskiptavinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband