Seinfærir ?
27.5.2010 | 12:02
Það alveg ótrúlegt að þeir sem þáðu mikla styrki sjái ekki sóma sinn í að þakka fyrir sig og yfirgefa svæðið.
Flokkarnir ná ekki trausti fólks nema að hreinsað verði til.
Ég met það siðblindu að þeir sem þáðu styrki finnst það vera í lagi (það skiptir ekki máli á hvaða árum það var) . Stór hluti þjóðarinnar er ósáttur við þetta og það er þjóðin sem að þetta fólk er í umboði fyrir.
Skilja þeir það virkilega ekki, hvaða ráðgjafa hefur þetta fólk ? ég bara spyr ?
Velgengni Besta flokksins fær allt þetta fylgi vegna óánægju við þá flokka sem fyrir eru. Ef fer sem horfir og engin sér sóma sinn í að yfirgefa stjórnmálasvæðið af þessum umdeildu einstaklingum verður Spaugstofan trúlega í framboði fyrir næstu Alþingiskosningar eða einhverjir álíka fyndnir.
Skoða ekki styrki Steinunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Góður punktur spaugstofan er miklu framar en fjórflokkur spillingar og valdhroka!
Með því að kjósa ekki fjórflokkinn lifir hann ekki og þá náum við fram hefndum á því sem okkur hefur verið boðið uppá síðastliðin ár.
Lyfi byltingin og lýðræðið!
Sigurður Haraldsson, 27.5.2010 kl. 13:35
Gunna ! Þeir eru allt allt allt of seinir að hreinsa út hjá sér , að mínu mati , eða heyrðir þú í Skjaldborg Gjaldborg í sambandi við styrkjadrottninguna , það á ekkert að gera í þeim málum , eingöngu ofurstyrkir hjá FL-okknum , að hennar sögn - já þetta er ömurlegt og sorglegt að þetta skuli vera staðreynd , ég held hún hafi farið í hausaskiptaherbergið í Þjóðarleikhúsinu .
Hörður B Hjartarson, 27.5.2010 kl. 15:29
Tek undir þetta.
Kv.
ThoR-E, 27.5.2010 kl. 21:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.