Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ég fékk bréf í fyrra...
11.9.2009 | 18:20
Síðastliðið sumar fékk ég svona snepil inn um lúguna mína. Mér var tjáð að trén mín færu of langt út fyrir girðingu.Ég skellti mér nú bara í BYKÓ og leigði mér klippur og reddaði þessu í snatri.
Stundum þarf að minna mann á.
![]() |
Viðhaldið er ekki einkamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þvílíkur viðbjóður.
11.9.2009 | 16:06
Þvílíkt skítapakk sem fólk getur verið.
Ég hélt að maður væri hættur að hneykslast vegna alls þess sem að á undan er gegnið.
Nei, það er alla veganna ennþá hægt að hneyksla mig.Er hægt að vera viðbjóðslegri en þessi maður sem komu Önnu Kristine í þessa stöðu.
Ætli það eigi ekki eftir að koma fleiri svona skítverk fram í dagsljósið, kæmi ekki á óvart.
![]() |
Anna Kristine var þjófkennd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég styð Gísla Martein, Hjólaborg.
11.9.2009 | 15:43
Ég hlakka til að búa í Reykjavíkurborg þegar Gísli Marteinn er búin að gera hana að HJÓLABORG.
Þá geta börnin gegnið í skólann án þess að foreldrarnir hafi áhyggjur af þeim og við íbúarnir getum fengið vinaleg hverfi sem hægt er að njóta hvors annars. Það verður bara æði.
Ég vona nú með tíð og tíma að Gísli Marteinn lýsi upp hjóla og göngustíganna svo við getum hjólað þar og gengið allan ársins hring.
Það væri jafnvel hægt að veita okkur afslátt af sköttum þar sem við verðum svo umhverfisvæn.
Áfram Gísli Marteinn, ég er ánægð með þig núna.
![]() |
Gísli Marteinn formaður umhverfis- og samgönguráðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)