Á ríkið peninga aflögu ?

Maður verður kjaftstopp við að lesa þessa frétt.

Á ríkissjóður einhverja peninga, ég bara spyr.

Það er búið að koma örorkuþegum niður í undir-lifanleg laun og núna á að fara fram á að ríkissjóður leysi úr fjárhagsflækju óráðsíubæjarstjórnar Álftaness.

Það er alveg örugglega hægt að verja peningunum betur.


mbl.is Ríkissjóður kaupi hlutabréf Álftaness í Fasteign
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þokkaleg laun.

Við höfum trúlega verið örfá eftir sem trúðum því að breyta ætti einkavinavæðingu og stjórnmálamönnum. Sú von er engin.

Ennþá er verið að ráða mann sem í raun ætti bara að vera á sínum margföldu eftirlaunum sem hann hefur "unnið til".

Það á greinilega ekki að gera neitt til að breyta "mafíu Ísland". 

Nú ræður Stjórnarformaðurinn sína vini sem misst hafa vinnuna í hruninu, ekki kæmi það á óvart.

Hvaða ábyrgð ætli fylgi þessu starfi, stjórnarstarfi sem gefur þessi góðu laun ?

 


mbl.is Friðrik Sophusson formaður ÍSB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Við erum best".

Það fer ekkert á milli mála að Íslendingar eru góðir í ýmsu, eins og til dæmis hjálparstarfi.

Það yljar að vita af því að við erum komin í heimspressuna fyrir góð störf, ekki veitir af.

 Ætli þetta geti haft áhrif á RUSLFLOKKINN ?

 


mbl.is Norðmenn hrósa Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt ár með breyttum lífsstíl.

is_2.jpg

Það eru margir sem að ákveða ýmsar breytingar á lífi sínu þegar nýtt ár gengur í garð. Að velja áramótin er góður tími að breytta lífsstíl sínum.Margir ætla að hætta að reykja og margir ætla að grenna sig.Það þurfa margir íslendingar að taka sig á og huga betur að því sem að ofan í maga þeirra fer.Við erum allt of kærulaus með það sem við veljum að setja ofan í maga okkar.

Íslendingar virðast margir hverjir alls ekki vita að líkaminn þarf góða næringu til að honum líði vel.

Við þurfum að fá um 50 næringarefni dagsdaglega til að líkaminn geti starfað eðlilega.

Það er nauðsynlegt að borða reglulega og borða holla fæðu. Ef við gerum það ekki höldum við ekki heilsu.

Það er góð ákvörðun að breyta um lífsstíl núna og ég óska þeim til hamingju sem þá ákvörðun hafa tekið. 


Flokkskírteinin hafa komið okkur í þá stöðu sem við erum í.

Flokkskírteinin hafa komið okkar í þá stöðu sem við erum í. 

Ef þjóðin hefði verið skynsöm og ráðið þá hæfustu hverju sinni í áhrifastöður og unnið hefði verið að heillindum, hefði þjóðin ekki lent í þessum hamförum.

Bankasalan og frelsi þeirra sem að stjórnuðu bönkunum vegna vina og tengsla við þá sem stjórnuðu landinu kom okkar þangað sem við erum nú og það er hörmulegt.

Nu bíður þjóðin spennt eftir  SKÝRSLUNNI 1.febrúar og þá mun enn frekar koma í ljós hverir áttu mestan þátt í þjóðargjaldþrotinu.

Við þurfum að stækka fangelsin, á því leikur varla nokkur vafi. 


mbl.is Ólafur Ragnar: Flokksskírteinið oft mikilvægara en hæfni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brennan logar við Ægisíðu.

dscn3834.jpg

Gleðilegt ár bloggheimur.

Óska ykkur gleðilegs árs og takk fyrir samskiptin á liðnu ári.Óska sérstaklega pirruðu lesurum sem þora ekki að vera undir nafni og vona að gagnsæið á nýja Íslandi hjálpi ykkur að koma fram.

Best að eiga lítið eða ekki neitt.

 thjofur_ad_nottu.jpg

Það eru ekki mörg ár síðan Borgarbúar voru með ólæstar dyr og hurðirnar á bílnum okkar voru ólæstar.Núna er flestir komnir með öryggiskerfi, búnir að selja gullið sitt og múra flatskjáinn inn í vegg. Já, það er breyting á Íslensku þjóðfélagi. Núna eru innbrotsþjófar að störfum um hábjartan dag.

Ætli framtíðin verði byssa á hvert heimili til að verja heimili sitt ?


mbl.is Innbrotum fjölgaði um 30%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramótabrenna.

dscn3831.jpgVerið er að leggja síðustu hönd á brennuna við Ægisíðu.Það hefur ekki tekið marga daga að hrúga upp brennunni við Ægisíðuna. Þegar börnin í hverfinu unnu hörðum höndum og að kappi við að safna í brennuna var oftast byrjað 1.desember.Núna er þessi vinna í höndum bæjarstarfsmanna og þeir eru snöggir að hrúga henni upp enda vel tækjum búnir.

Sagan af Jesús.


Hver hefur haldið því fram að fita fiti?

feitur_og_mjor.jpg

Ekki veit ég hver hefur haldið því fram að fita fiti frekar en önnur orkugefandi efni. Þetta er spurning um heildarorku. Ef þú færð þá orku sem líkaminn þarf, heldur þú þinni þyngd. Fáir þú hins vegar  of mikla orku, víkkar þú út í veröldina, þá skiptir engu máli hvort orkan komi úr kolvetni, fitu, próteinum eða alkahóli.Ekki þekki ég hina skýringuna með að fita fiti...það er nú bara rugl.

 


mbl.is Feitur matur fitar ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól.

jol_0002.jpg

Græðgi eða siðblina ?

Ég tel afar ósiðlegt að hafa við völd í nýju bönkunum fyrrum starfsfólk sem er blindað af græðgi og algjörlega óhæft til að laga sig breyttum gildum í samfélaginu.

Við fáum aldrei hreinsað til í "nýja Íslandi" fyrr en við fáum nýtt og skynsamlegt fólk til starfa og það þarf að gerast sem fyrst.

 

 


mbl.is Birna með 12,5 milljóna kröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vil Rjúpu.


Hveiti hollara en Spelt.

Kastljós sýndi í vikunni rannsókn sem þeir hefðu gert á gæði og verði Hveitis.Fróðleg að sjá að ekki var fylgni á milli gæða og verðs. Trúlega hafa margir átt von á því að "fína" hveitið frá Ameríku sem margir halda að sé svo mikið betra var alls ekki betra.

Nú getum við róleg farið út í búð og keypt ódýrasta Hveitið og árangur og bragð verður eins og við viljum hafa það.

Í framhaldi af hveitinu langar mig að nefna muninn á Spelti og Hveiti. 

Margir trúa því að Spelt sé mun hollara en Hveiti.  Mikil áróður hefur verið á hollustu Spelt og trúlega hefur sá áróður alls ekki verið réttur. Margir vilja trúa því að Spelt sé hollast og fólk hleypur bæinn á enda til að kaupa gæðabrauð úr Spelti.

Mig langar að minna á að verið er að bera saman Hveiti og Spelt ekki Hveiti og Heilhveiti.

Hveiti er unnið úr Heilhveiti og þar af leiðandi er rangt að bera saman Hveiti og Spelt.

Rétt er að bera saman Spelt og Heilhveiti eins og taflan hér að neðan sýnir.

naeringarinnihald_940194.jpg

myndin er óskír en vel lesanleg. 

 


Fróðlegt.

Það var gaman að hlusta á Roger Boyes í Silfrinu. Hann sér hlutina í svipuðu ljósi og margir Íslendingar gera.Hefur greinilega kynnt sér Kolkrabbann og frænda og vina mennskuna sem að tröllreið þjóðinni.

Ég held að stór hluti þjóðarinnar hafi vonað að hlutirnir breyttust við hrunið, en því miður er æðimargt sem að bendir til þess að svo sé alls ekki. Hvað ætli þjóðin þurfi mörg hrun til að læra að vinna af þekkingu en ekki hentugleikastefnu. 

Trúlega er sumir ósammála líkingu hans á Jóni Ásgeiri og Davíð, en skemmtileg samlíking engu að síður.


mbl.is Boyes: Of mikil áhersla á ál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glórulaust.

Hvernig er þetta hægt ?Það hlýtur að vera penast að læsa dyrunum og hætta rekstri á slíku skuldafeni.Það er erfitt að sjá að hækkun vörugjalds hafi eitthvað með alla þessa skuld að gera.Afborgun af lánum hlýtur að fara út í vöruverðið. Ég hef hvergi heyrt talað um það.
mbl.is Ölgerðin skuldar 15,3 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð tillaga hjá Ólínu.

Ég verð nú að segja það góða tillögu hjá Ólínu að breyta þingsköpun. Alþingi hefur undanfarna daga verið eins og málfundafélag í framhaldsskóla. Slík vitleysa gengur bara alls ekki og þá er það alveg sama hver á í hlut. Núna vill þjóðin sjá eitthvað breytast, það er ekki boðlegt lengur svona sóun á peningum og tíma.
mbl.is Ólína vill breyta þingsköpum til að hindra málþóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gleyma morgunverðinum.

Það er nauðsynlegt að borða morgunmat, því góð næring er líkamanum nauðsynleg.Núna þegar alls konar gylliboð hellast yfir þjóðina er nauðsynlegt að leggja áherslu á góða næringu.Margir halda það grennandi að sleppa úr máltíð en þannig er það því miður ekki.Líkaminn þarf holla og góða næringu fimm sinnum á dag.Hugsum um heilsuna og borðum skynsamlega.

Hvað finnst Bjarna Ben. um þetta málþóf ?

Hvað ætli Sjálfstæðismenn hefðu sagt ef þeir hefðu verið í stjórn og stjórnarandstæðan sóað tímanum til einskins.Það hlýtur að vera komin sá tími að við fáum inn á Alþingi skynsamlegt fólk með reynslu af lífinu og kann að vinna.

Það þyrfti að vera krafa að þeir sem bjóði sig fram til Alþingis hafi reynslu af vinnu,annarri en að stjana í kring um flokksbræður sína, eins bakgrunnur allmargra þingmanna er í dag. 

Það væri einnig hægt að nota Bónus-kerfið. Laun eftir vinnuframlagi. 

 


mbl.is Þingfundur þar til mælendaskrá er tæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband