Hver hendir rusli í hverfið okkar ?
18.4.2012 | 15:01
Ætli við hendum því ekki mest sjálf og svo kemur "kári" trúlega til hjálpar og blæs því á ákveðna staði, svo af verða haugar af sælgætisumbúðum, djúsumbúðum og ýmsu öðru.
Vesturbæingar eru stoltir af sínu hverfi og auðvitað eigum við að hjálpast að við að halda því snyrtilegu.
Út með pokana Vesturbæingar og hreinsið í kring um ykkur.
|
Tíndu upp kaffimál og flugeldarusl |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Alveg með ólíkindum.
13.4.2012 | 12:25
Það væri mjög til bóta að hafa ákveðin "LÖG" um fjölda nemenda í bekk auk þess það ætti einnig að vera ákveðin fjöldi barna "með sérþarfir" í hverjum bekk.
Álagið á kennara í mörgum skólum er afar mikið og þá má spyrja, eru ALLIR nemendur að fá þá kennslu sem þeir eiga rétt á.
Það er stór hópur barna sem fær litla hjálp inn í stórum og erfiðum bekkjum. Við getum ekki haldið áfram að horfa fram hjá því.
Foreldrar barna sem vilja fá frið og læra ljóta að hafa athugasemdir við það fyrirkomulag sem er.
|
Enginn hámarksfjöldi barna í bekk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn !
28.2.2012 | 22:01
Það er alveg með ólíkindum hvað vinnubrögð þeirra sem þjóðin kaus á þing er léleg og dónaleg.
Ég er alveg viss um að fáir hafi viljað sjá sitt atkvæði í skítkasti í mann og anna. Mér finnst það alls ekki skipta máli hver á í hlut.
Ef þingmenn væru við kennslu í skólum landsins væri alveg örugglega búið að ávíta þá oft og jafnvel reka.
Í boði hvers leyfum við þetta skítkast ????
|
Klámhögg og lygar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Skyndilausnir endast stutt.
25.2.2012 | 11:21
Það er með ólíkindum hvað fólk hoppar aftur og aftur á skyndilausnir. Þar eru vörur sem eiga að "grenna" fólk mjög vinsælar. Það er alveg gulltryggt að sá sem græðir og nær bestum árangri er framleiðandinn og sölumaðurinn.
Sölumenn sem eru næstum því undantekningalaust lítið lærð í næringar og líffræði, en kunna fullt af innihaldslausum frösum og loforðum sem oft á tíðum eru stór hættuleg.
Góðir hlutir gerast hægt og það eru engar töflur eða duft sem gera kraftaverk þar.
|
Um gylliboð til að bæta heilsu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Heimahjálpin víkur fyrir vélinni.
13.2.2012 | 12:48
Danir eru líka að spara. Nú á að spara við "eldra" fólkið og fækka heimsóknum og þrifum hjá eldri borgurum.Nú á að virkja sjálfvinnandi ryksugu til að sjúga gólfin.
Það er allt reynt til að eldri borgarar fái sem minnstu þjónustuna víðar en hér á Íslandinu "góða".
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekkert óeðlilegt við það.
7.3.2011 | 13:01
Það er eðlilegt og mannlegt að fara mörg hliðarspor í "átakinu".
Það eru því miður afar fá "átök" sem hafa skilað varanlegum árangri og þar þarf ég ekki að nefna nein nöfn því til sönnunar.
Gjörbylting á lífstíl fólks er dæmd til að mistakast. Þannig er það nú bara og mun verða svo lengi sem ekki er hægt að tengja okkur við tölvu.
Við erum sem betur fer mannleg með sálarlíf og þar er margt sem ekki er hægt að breyta bara sísvona.
|
Einar gripinn við nammisjálfsalann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sorglegt.
24.11.2010 | 06:43
Greiðsla á vaxtarbótum er einmitt greiðsla sem að gæti komið fólki til hjálpar eftir hrunið.
Gæti ekki verið skynsamlegt að greiða fólki sem skuldar mikið, hærri vaxtabætur og þá af öllu láni sem það hefur og þá ekki með tengingu eingöngu í fasteignalán.
Margir hafa verið nauðbeygðir til að hækka yfirdrátt og taka önnur lán til að bjarga sér fyrir horn.
Hækkun vaxtabóta gæti verið leið til að koma á móts við þá sem skulda mikið eftir hrunið.
|
Sumir gætu misst allar vaxtabætur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Hægt að gera betur.
24.11.2010 | 06:37
Það er alveg örugglega hægt að minnka heimilissorpið enn meira ef matvæli væru ekki svona vel inn pökkuð eins og þau eru í dag.
Þegar maður kemur úr matvörubúðinni með þrjá poka fer einn strax aftur út í rusl í formi umbúða utan um það sem við vorum að kaupa.
Þarna hlýtur að vera hægt að takmarka umbúðir eitthvað.
|
Hætt að draga úr heimilissorpi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Hvar er skynsemin ?
13.11.2010 | 11:58
Eins og eldur í senu hefur þessi engiferdrykkur farið um landið.
Alltaf verð ég jafn hissa á viðbrögðum fólks fyrir "skyndilausnum".
Vel upplyst þjóð teljum við okkur vera, en hvað gerist þegar vara með "skyndilausnum" , kemur á markað. Meira en hálf þjóðin hleypur til og tekur þátt.
Þetta gerðist líka í góðærinu, fólk hljóp til.
Hvernig stendur á þessu ?
Hvað gerist í kollum fólks ?
Hvar er skynsemin ?
Erum við kannski ekki vel upplýst ?
|
Fengu aldrei fyrirmæli um að taka drykkinn af markaði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Steikja vel og lengi.
1.8.2010 | 14:42
Það er gott að hafa þá reglu að steikja alltaf kjúklinga vel og lengi. Vera ekki að halda þeim lengi heitum og kæla fljótt.
Nota ekki sama bretti undir kjúklinganna og kálið.
Þetta eru grundvallarreglur við matreiðslu kjúklinga.
Hreinlæti er alltaf mjög mikilvægt. 
|
Enn grunur um salmonellu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er enn og aftur verið að koma "fólki fyrir"
29.7.2010 | 13:07
Það eru sorgleg þessi vinnubrögð þegar verið er að koma fólki fyrir. Einhvernvegin vonaði maður að ástandið yrði betra eftir hrun, en því miður heldur leikurinn áfram.
Núna var verið að koma Runólfi fyrir .
Alveg er það öruggt að koma á Ingibjörgu Sólrúnu fyrir á Akranesi, trúlega búið að lofa henni því.
Það er alveg sama hvað "fólkið þeirra" gerir og hverju það klúðrar, því er alltaf lofað gull og grænum skógum.
|
Ætlar að krefjast rökstuðnings |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Nei takk !
24.6.2010 | 17:37
|
Tilbúið til viðræðna um kosti sameiningar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Gleymum ekki !!!
3.6.2010 | 23:53
Ennþá í sandkassanum.
27.5.2010 | 22:38
Alveg finnst mér Þórunn hefði mátt sleppa þessari yfirlýsingu sinni.
Steinunn Valdís er ekkert betri þó að aðrir séu verri, þau eru öll með ranga siðferðiskennd þau sem þáðu fúlgur fjár í styrki, til að koma sér á framfæri og auðvitað ættu þau öll að vera farin frá störfum sínum og það strax.
Sjálfstæðismenn í Borgarstjórn eru þar engin undantekning þar þarf að hreinsa til og það út í öll horn.
Steinunn Valdís átti að vera farin fyrir löngu þá hefði verið hægt að skjalla hana pínu Þórunn, en núna, nei allt of seint í rassinn gripið hjá henni því miður.
|
Setur þrýsting á aðra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ég fékk bréf frá Hönnu Birnu.
27.5.2010 | 22:28
Inn um póstlúguna mína í dag kom bréf frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Ég hef aldrei fengið bréf frá henni áður en ég hef sent henni bréf og hún virti mig ekki viðlits. Svaraði ekki.
Ég hef fengið bréf í hverri viku frá Hönnu Birnu, en það bréf hefur verið á tölvutæku formi, komið í veffangið mitt og trúlega ekki kostað mikið.
Ég las það tvisvar sinnum en síðan hef ég sett það í ruslatunnuna.
Hanna Birna er mjög ánægð með verk sín segir hún í bréfinu og vill halda áfram að vinna að sínum góðu verkum. Það er að sjálfsögðu mjög gott að hún er ánægð með sig og sína vinnu en ég er það alls ekki.
Það er margt sem ég hef reynt að að koma til yfirvalda í Ráðhúsinu en það er engin nennt að hlusta.
Sem starfsmaður borgarinnar finnst mér mjög margt sem að mætti laga.
Finnst Borgarstjóra þjónusta hennar við eldri borgara framúrskarandi ?
og skólarnir eru þeir framúrskarandi ?
Ef svo er finnst mér eins og Borgarstjóri viti alls ekki hvað er að gerast í þessari borg.
Það er langt frá því að ástandið sé framúrskarandi Hanna Birna, því miður.
Ég veit að það eru margar hliðar á öllum málum og þessu líka, en betra væri að spara stóryrðin og fylgjast með hvað er að gerast í Borginni.
Hver ætli greiði fyrir þessa póstsendingu Hönnu Birnu, ég vona að það hafi ekki verið við hér í Reykjavíkurborg.
Seinfærir ?
27.5.2010 | 12:02
Það alveg ótrúlegt að þeir sem þáðu mikla styrki sjái ekki sóma sinn í að þakka fyrir sig og yfirgefa svæðið.
Flokkarnir ná ekki trausti fólks nema að hreinsað verði til.
Ég met það siðblindu að þeir sem þáðu styrki finnst það vera í lagi (það skiptir ekki máli á hvaða árum það var) . Stór hluti þjóðarinnar er ósáttur við þetta og það er þjóðin sem að þetta fólk er í umboði fyrir.
Skilja þeir það virkilega ekki, hvaða ráðgjafa hefur þetta fólk ? ég bara spyr ?
Velgengni Besta flokksins fær allt þetta fylgi vegna óánægju við þá flokka sem fyrir eru. Ef fer sem horfir og engin sér sóma sinn í að yfirgefa stjórnmálasvæðið af þessum umdeildu einstaklingum verður Spaugstofan trúlega í framboði fyrir næstu Alþingiskosningar eða einhverjir álíka fyndnir.
|
Skoða ekki styrki Steinunnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Þetta segir allt sem segja þarf.
26.5.2010 | 07:26
Borgarbúar eru orðnir langþreyttir á þeim sem að sitja í Borgarstjórn. Það sýna þeir með því að setja X við Besta flokkinn.
Ekki veit ég hvort þeir sem eru á lista Besta flokksins séu nokkuð verri né betri en þeir sem skipa aðra lista, það mun koma í ljós síðar.
Hvaða reynslu hafa menn í Borgarstjórn, margir hafa ekkert annað gert en að vera í stjórnmálum og það alla sína ævi.
Þeir sem ákveða að fara í stjórnmál á fermingardeginum sínum, ákveðin í að komast til valda sama hvað á dynur eru að mínu mati fólk án reynslu.
Það ætti að setja reglur um að fólk sem býður sig fram til stjórnmála hafi reynslu af atvinnulífinu, hafi reynslu að vinna úti á hinum almenna vinnumarkaði.
Framboð Besta Flokksins segir okkur að fólk vilji breytingar, vilji annað fólk til starfa en það sem setið hefur við völd undanfarin ár.
Við viljum heiðarlegt fólk sem vinnur fyrir fólkið en ekki eingöngu fyrir sig og sína "vini".
|
Mikið forskot Besta flokksins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ætli þeir geti lokað á sjúkdóma.
18.5.2010 | 22:52
Það er alltaf erfitt þegar það þarf að spara. Þó er hægt að spara víða án þess að það skapi mikil óþægindi.
"Kreppan" hefur haft þær afleiðingar að fleiri hafa fundið fyrir geðsænum sjúkdómum.
Depurð eykst hjá fólki þegar það á ekki fyrir því nauðsynlegasta eins og mat, svo ég tali nú ekki um fólkið sem ekki hefur þak yfir höfuðið.
Ætli þeim takist að spara sjúklinga, það væri það eina sem gæti leist lokun bráðadeildar geðsviðs. Landsspítalans.
|
Geðdeild lokað í sparnaðarskyni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Það þarf að vera einhver rík nauðsyn til þess,
18.5.2010 | 16:27
Hvað er að gerast. Þegar háttvirtir lögmenn halda slíku fram verður hver maður kjaftstopp.
Ætlar þetta rugl aldrei að taka enda.
Hvar er heiðalega fólkið á þessu landi ????
Besti flokkurinn er bestur.
17.5.2010 | 14:47
Besti flokkurinn fær okkur til að hlæja. Ekki veitir okkur af.
Hvort loforðin standi er aukaatriði. Það eru fá loforð sem hafa staðið hjá hinum flokkunum, hvort sem er.




