Hvar er skynsemin ?

Eins og eldur í senu hefur þessi engiferdrykkur farið um landið.

Alltaf verð ég jafn hissa á viðbrögðum fólks fyrir "skyndilausnum".

Vel upplyst þjóð teljum við okkur vera, en hvað gerist þegar vara með "skyndilausnum" , kemur á markað. Meira en hálf þjóðin hleypur til og tekur þátt.

Þetta gerðist líka í góðærinu, fólk hljóp til.

Hvernig stendur á þessu ?

Hvað gerist í kollum fólks ?

Hvar er skynsemin ?

Erum við kannski ekki vel upplýst ?


mbl.is Fengu aldrei fyrirmæli um að taka drykkinn af markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Kolbeinsson

Nákvæmlega.

Og síðan er þessi snillingur sem flytur þetta inn með yfirlýsingar eins og "Þetta er algjörlega skaðlaust og ekki ástæða til þess að taka drykkinn af markaði," segir Óli sem bendir á að drykkurinn innihaldi aðeins lífræn efni eins og engifer. „Það eru engin aukaefni eða neitt þannig í drykknum," segir Óli. (-visir.is)

"Ég vil taka það fram að nýji Arsenik heilsudrykkurinn minn er algjörlega náttúrulegur og inniheldur engin aukaefni eða neitt þannig"  væri nákvæmlega jafn skynsamlegt. 

Ef það hefur virkni þá getur það haft aukaverkanir. Engifer er alveg magnað efni (ýmislegt sem ER sannað um engifer) en getur engu að síður haft aukaverkanir eins og bakflæði, vindgang, slæm áhrif á magasár, og jafnvel haft áhrif á blóðþrýsting og hjartslátt (ósannað).

Allar skyndilausnir geta haft slæmar afleiðingar, ef þær þá gera eitthvað á annað borð. Og þessi innflutningsaðili virðist ekki hafa nokkurn skilning á því. Það er nóg til að ég myndi allavega aldrei versla við hann. 

Ari Kolbeinsson, 13.11.2010 kl. 12:39

2 identicon

Hann er snjall að geta selt fólki þetta á uppspengdu verði. Þessi þjóð er alveg gullnáma fyrir allkyns töfralausnamenn með allksonar ráðgjöf í heilsufræðum um hvað eigi ekki að borða og hvað eigi að borða án það sé neitt á bak við það annað en að féfletta auðtrúa fólk. Þetta kaupir þjóðin fyrir morðfjár á hverju ári þó það sé komið árið 2010. Mjög dapurt.

Sveinn (IP-tala skráð) 13.11.2010 kl. 12:44

3 identicon

Engiferdrykkurinn er engin skyndilausn  né töfralausn ..og hefur aldrei verið markaðsettur sem slíkur.... Einnig er engiferdrykkurinn íslensk framleiðsla en ekki innfluttur :)

Anna Maja (IP-tala skráð) 13.11.2010 kl. 12:50

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já það er dapurlegt að fólk falli fyrir skyndilausnum, því það er margsannað að það er engin allsherjar lausn til.

Mikið af þessum "lausnum" hreyfa mest við pyngjunni.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 13.11.2010 kl. 12:59

5 identicon

Já nú virðist "trendið" vera alls kyns töfrasafar sem geta læknað og virkað grennandi o.s.frv.  Fólk er í alls kyns píramýdum þessa dagana að selja hvort öðru töfradrykki sem allir eiga það sameiginlegt að geta grennt fólk, læknað og verið fyrirbyggjandi gegn flestum sjúkdómum.  Já við verðum alltaf auðtrúa og viljum trúa því að við læknmst út af einhverjum ávaxta- eða grænmetissöfum.

Margrét Ólafsd. (IP-tala skráð) 13.11.2010 kl. 13:03

6 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Fólk þarf að nota heilafrumurnar,margt er hægt að læra.Lærði margt um notkun á kvítlauki,matarsóda,engiferi frá tendamömmu úti á Italíu,þær voru snjallar og kunnu mörg trik sem eru heimagerð.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 13.11.2010 kl. 15:05

7 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Þetta er í eðli veiðimannasamfélagsins grípa það sem gefst.

Við sjáum þetta í svo mörgu hér á landi þegar fólk fer t.d  í rekstur á fyrirtækjum á að gæða frá fyrsta degi.

Þolinmæði og þrautseigja er á undanhaldi.

Atvinnulausir taka ekki vinnu sem er á svipuðum launum og atvinnuleysisbætur vegna þess að það hugsar ekki fram í tímann það er erfitt að fá vinnu ef þú ert búin að vera atvinnulaus í lengri tíma því þá er haldið að þú sért ekki góður starfsmaður, það þarf að sanna sig og sýna að það er að gera hluti sem þó eru ekki endilega það besta sem hæfir þeim eða því sem það hefur verið að vinna við áður, þetta er að hafa metnað fyrir sjálfum sér    

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 15.11.2010 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband