Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Þvílík fegurð.

dscn3642.jpg

Þó allt sé að sökkva, fer fegurðin ekki neitt.

Þetta var sólarlagið við Ægisíðu rétt í þessu. 

dscn3643.jpg

Söfnum hári.

276014170 2745e607f3Það er hægt að spara mikið ef við hættum að fara og láta klippa, lita og laga hárið.Ég fór að láta laga á mér hárið um daginn. Það var brúðkaup í fjölskyldunni og öruggara að hafa allt í lagi.Það leið næstum því yfir mig þegar ég fékk reikninginn hátt í tuttugu þúsund krónur.Þarna getum við greinilega sparað mikið.Látum hárið vaxa og ekkert pjatt.

Skil ekki alveg ?

Alveg finnst mér það ótrúlegt þegar innkaupastjóri kemur með þriggja ára spá fyrir verði á eldsneyti.

Þetta hlýtur að vera jafn laust í taumi og Greiningadeildir bankanna voru á síðustu árum.

Varla getur nokkur trúað svona spádómi. 


mbl.is Spáir svipuðu verði næstu ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útsvar, borgar það ?

Útsvar, spurningaþátturinn á  RÚV er að mínu mati skemmtilegur. Gaman að sjá fólk spreyta sig á miserfiðum spurningum.Ég held að stór hluti þjóðarinnar kunni að meta svona þætti og svo er hægt að sjá hvað við erum sjálf vel upplýst.

Spurningarnar í síðasta þætti voru  frekar "daprar" og eiga varla heima í Sjónvarpi allra landsmanna Barnaefni, takmarkaður hópur sem er í þættinum  horfir á barnaefni. Annað sem vakti furðu mína var að þeir spurðu spurningu úr læstri dagskrá annarrar sjónvarpsstöðvar.

Er það boðlegt í sjónvarpi allra landsmanna ?

Áhorfendur gera að sjálfsögðu mikið fyrir þáttinn, stemmning.

Lítill fugl hvíslaði að mér að áhorfendur fengju greiðslu.

Getur það verið að RÚV greiði fólki fyrir að koma og klappa á réttum stöðum ? 


Sjálfstæðismenn eru svo breiðir...

Alltaf svo gaman að hlusta á "rótgróna" Sjálfstæðimenn þegar þeir tala um breidd innan flokksins, segja jafnvel að það séu svo margir Sjálfstæðismenn að það sé að sjálfsögðu mikil breidd í skoðunum.

Þegar Sjálfstæðismenn tala um aðra flokka og mismunandi skoðanir þar innan dyra þá eru þeir alveg um leið búnir að kljúfa þann flokk. Það má að þeirra mati ekki vera nein breidd í neinum flokki nema þeirra flokki. 


Eins og stormsveipur....

Gott hjá Sigga stormi. Hann þeytist um eins og stormsveipur.

Gott fólk á að sjálfsögðu að vera á góðum stöðum, engin spurning um það.

Verst að hann getur ekkert breytt þessari spá neitt að viti. 


Mislukkuð ástarsambönd, úfff

Já það er slæmt þegar ástin dofnar og engin ráð til úrbóta. Enn verra er þegar fólk er að reyna að halda saman einhverju sem að ekkert er og hefur jafnvel ekki verið í langan tíma svo ég tali nú ekki um áratugi.

Ástarsorg étur mann að innan og tekur oftast stóran toll af lífinu.

 Það hefur samt aldrei hvarflað af mér að líkja sorginni við pyntingar Gestapó.

Kannski ekki svo slæm samlíking ?? 


mbl.is Mislukkuð ástarsambönd að baki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má alveg leggja vinnutækjum sínum í húsagötur ?

dscn3543.jpg

Á göngum mínum í Vesturhluta borgarinnar verður margt á vegi mínum.  Margt skemmtilegt sem betur fer og margt sem að vekur upp stórar spurningar.

Á Seltjarnarnesi eru oft númerslausir bílar í götum og jafnvel margir á sama staðnum. Í fyrra var hjólhýsi frá viðhaldsfyrirtæki í húsagötu og var geymt  þar til snjóa leysti.Núna er ég búin að ganga fram hjá vinnutæki í margar vikur á Seltjarnarnesinu og það virðist vera komið til "vetrarsetu". Sú spurning hefur vaknað í huga mínum hvort það sé allt í lagi að geyma gamla númerslausa bíla og vinnutæki í húsagötum eins lengi og það henti eigendum ?


Er ennþá sumar á Akureyri ?

Ég borgarbarnið brosti þegar ég las þessa frétt, veit það var ekki rétt af mér en, er ennþá verið að heyja á Akureyri ?
mbl.is Eldur í rúllubindivél í Eyjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fríkirkja !

Verða þeir ekki að kljúfa kirkjuna þarna á Selfossi og stofna Fríkirkjusöfnuð ?

Mér finnst mjög alvarlegt að alþingismenn og aðrir lýsi því að stúlkurnar sem að kærðu strok prestsins séu hafðar fyrir rangri sök.

Skilaboð þeirra sem að eru að senda stuðning við séra Gunnar eru þar með að segja að þær hafi ekki sagt satt.

Þannig var það líka þegar Séra Ólafur Skúlason, blessuð sé minning hans, var sagður alsaklaus.

Getur virkilega verið að innan kirkjunnar sé slík siðblinda ennþá í gangi ?

Ég hræðist þetta athæfi á Selfossi, mér finnst ekki góður ilmur af þessu. 

Vonandi eru þeir sem eru að hrópa um stuðning sjálfir með hreinan skjöld. 


mbl.is Hörð gagnrýni á biskupinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband