Gott hjá ykkur Bolvíkingar.

Auðvitað er það rétt hjá Bolvíkingum að flugvöllurinn á að vera í Vatnsmýrinni.

Bolvíkingar þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur og við eigum að sjálfsögðu að hafa flugvöllinn í Reykjavík.  Þó vil ég segja að flugvöllurinn er ekki lengur í miðbænum eins og hann var áður en að Reykjavík teygði sig yfir svona langt svæði.

 


mbl.is Vilja flugvöll áfram í Vatnsmýrinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Æ ég veit ekki , fyrir all löngu síðan bjó ég hjá móður minni í Litla-Skerjafirði , og það nötruðu rúðurnar í íbúðinni er vélarnar voru að takast á loft , það eru margar hliðar á þessu , sem öðrum málum .

Hörður B Hjartarson, 11.4.2010 kl. 22:03

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála þér, Guðrún

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 22:19

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég horfi á vélarnar hér út um gluggann og mér finnst það notalegt. Fæ tilfinningu fyrir því að ég sé ekki lokuð hér á þessu skeri, það er farartæki þarna sem gætu bjargað manni.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 11.4.2010 kl. 22:41

4 Smámynd: Hannes

Flugvölurinn á að fara þegar næsta uppsveifla kemur enda er hann eitt stór skipulagsslys.

Það á að byggja þarna þétta byggð í staðinn fyrir að byggja lengst útií rassgati eins og er búið að gera.

Hannes, 11.4.2010 kl. 23:54

5 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Hannes !

    Ég er sagður afar gamaldags og vissulega er ég hrifinn af antiki sem og geri mér vel ljóst að ýmislegt er verra í dag en var áður fyrr , en ég held að mikið sé til í þessu hjá þér  , því miður.

Hörður B Hjartarson, 12.4.2010 kl. 00:13

6 identicon

Sæl öll.  Völlurinn er að sjálfsögðu ekki skipulagsslys, enda var ekkert byrjað að skipuleggja fyrr en mörgum mörgum árum eftir að hann varð til.  Það sem gerist alltaf er að flugvellir eru byggðir og svo er byggðin þróuð í átt að honum því fólk vill hafa fyrirtæki og íbúðir nálægt samgöngumannvirkjum sem gefur augaleið.

Þétt byggð á þessum stað gerir ekkert annað en að skapa meiri mengun, umferðaöngþveiti og vanlíðan í "miðborginni", sem er ekki lengur miðborg þar sem miðja Höfuðborgarsvæðisins er komin út í Smáralindarhverfið í Kópavogi.  Reykjavíkurborg vill ekki tapa skatttekjum með fækkandi íbúum sem flytja í nýrri og betri hverfi og vilja þess vegna reyna að fjölga íbúum með því að þétta byggðina kringum Vatnsmýrina.  Flugvöllurinn skapar hins vegar borginni gríðarlegar tekjur á hverju ári og þess vegna er líka mikil áhætta að fórna honum.  Að fórna eins góðum flugvelli og Reykjavíkurflugvöllur er jafnast á við að fórna náttúruauðlind.  Ábyrgðarlaust og óafturkræft.  Að lokum má nefna að alls staðar þar sem flugvellir eru lagðir niður fækkar störfum, fyrirtæki flytja burt nær öðrum flugvöllum vegna betri samgangna og flutningsmiðlunar og lífsgæði almennt versna.

Matthías (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 00:23

7 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Við friðlýsum fligvöllin er það ekki málið ?

Við verðum komin á öldrunarheimili þegar þörf verður á nýjum íbúðum, eða í Fossvoginn.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 12.4.2010 kl. 09:38

8 identicon

Góð hugmynd hjá þér :-)  Það hefur reyndar verið gert við nokkra flugvelli og meira að segja var einn í Svíþjóð settur á heimsminjaskrá því hann hefur líka sögulegt gildi fyrir utan að vera mikilvægur fyrir innanlandsflug í Svíþjóð.  Vona svo innilega að eitthvað álíka gerist svo fólk láti Reykjavíkurflugvöll í friði og fari að einbeita sér að öðrum mikilvægum málum.

Matthías (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 13:10

9 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Það eru margar hliðar á þessu máli , bæði góðar og slæmar , já hvernig væri það að friðlýsa hann , Svandís er svo friðlýsingarglöð , henni fynnst koma til greina að friðlýsa Hrungosið , ég vil friðlýsa skýrsluna , já held væri ekki vitlaust að stoppa svo upp eitthvað af þessu stórmerka liði þ.e. aðalleikarana í skýrsluverkinu .

Hörður B Hjartarson, 12.4.2010 kl. 14:35

10 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

það verður tölvupóstur á Svandísi !

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 12.4.2010 kl. 17:37

11 Smámynd: Jón Svavarsson

Alveg rétt hjá Matthíasi, flugvöllurinn er ekkert skipulagsslys, en ýmistlegt annað er skipulagsslys og í Kópavogi er eitt stórt skipulagsslys! Þétting byggðar í Vatnsmýrinni og drekking tjarnarinnar, það yrði ekki bara SKIPULAGSSLYS heldur NÁTTÚRUHAMFARIR AF verstu gerð. Lífríkið sem núþegar er búið að vega að á þessu svæði myndi hverfa að fullu. Bændur víða um landið er nú að fá styrki til að fylla aftur upp í skurði sem voru til að ræsa út mýrlendi, sem kostaði það að fuglavarp hvarf á því svæði. Það þarf jafnvægi í náttúrunni, það þarf að vera hæfilegt magn af mýrlendi, móum engjum, skógum, kjarri, hrauni söndum og lengi má áfram telja og einnig hæfilegt magn af flugvöllum.

Jón Svavarsson, 13.4.2010 kl. 12:34

12 Smámynd: Jón Svavarsson

Auk þess má spyrja hver ætti að greiða fyrir uppbyggingu nýs flugvallar? ERUÐ ÞIÐ REIÐUBÚIN AÐ HÆKKA SKATTA TIL AÐ GREIÐA SLÍKA VITLEYSU?

Jón Svavarsson, 13.4.2010 kl. 12:36

13 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Jón !    Tek heils hugar undir þín orð , hvað varðar uppþurrkun allra mýrarflákanna á Íslandi (NÁNAST) t.d. rekur  maður upp stór augu , sjái maður jaðrakaninn , en er ekki nóg af fuglum þ.e. furðufuglum í Þjóðarleikhúsinu nið´r við Austurvöll er það ekki nóg fyrir okkur Reykvíkinga?

    Ekki er ég sannfærður um að flugvöllurinn eigi að fara , en ég set við það og að sjálfsögðu á ekki að hrófla við honum eins og ástandið er í dag.

Hörður B Hjartarson, 13.4.2010 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband